Gufubað í Grafarvogslaug
Betri og stærri infra-rauðan klefa
Fyrir margt löngu var samþykkt að fá gufubað í Grafarvogslaug. Mikil voru vonbrigðn þegar eftir allt of langan tíma að skellt var niður tveimur sumarbústaðatunnum sem hafa verið meira og minna lokaðar síðan. Fólk situr hvert ofan í öðru eins og síld í tunnu þegar loksins er opið. Hver í borgarkerfinu tók þessa fáránlegu ákvörðun. Skora á ÍTR að prófa Lágafellslaug í Mos. til að sjá hvernig á að gera. Vil samt hrósa Dalslaugarkonseptinu, frábærir pottar vantar samt saunurnar,
Sammála. Infra-rauði klefinn virkar öurgglega ekki eins og honum er ætlað að gera, að minnsta kosti var virkni hans allt önnur þegar hann kom nýr. Notkun á klefanum virðist vera mikil svo það er alveg grundvöllur fyrir að setja alvöru infra-rauðan klefa á sundlaugarsvæðið.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation