Reykjavíkurborg þarf að ná samkomulagi við húseigendur um að byggja göngustíg sem tengir Gnoðarvog 26-30 (og þar með alla heimana) + Gnoðarvog 32-36 (og þar með strætóskýlið við leið 14) við Suðurlandsbraut (og þar með miðhluta Skeifunnar). Í dag er þarna fjölfarinn leið og grasið ónýtt og í raun bara komið drullusvæði.
Það er brýn þörf á betri göngutengingu á milli Gnoðarvogs og Suðurlandsbrautar. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á moldardrullu á fjölfarinni gönguleið. Þarna þarf að byggja upp góðan stíg í samráði og samvinnu við íbúa sem allir njóta góðs af.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation